
Sólveig er gamalt og gott íslenskt nafn. Sól er eins og sólin sjálf, minna mátti það nú ekki vera til að halda í við birtuna í nöfnum Snæfríðar Birtu og Sindra Heiðars. Og -veig þýðir kraftur eða máttur. Semsagt máttur sólarinnar. Og svo er það Embla, sem er nafn sem hefur verið í uppáhaldi hjá okkur foreldrunum lengi. Og Embla var í norrænu goðafræðinni fyrsta konan sem var sköpuð.
En reyndar er það tilviljun að öll nöfn barnanna okkar byrja á S..... skemmtileg tilviljun það!
3 comments:
Halló Sólveig Embla!
Til hamingju með fallega nafnið þitt!
Bestu kveðjur að norðan,
Heiðrún og Almar stödd í sveitinni þessa vikuna.
Hæ Sólveiga Embla:):)
Til Hamingju með Nafnið:)
Þetta Rosalega fallegt nafn:)
Hæ kæra fjölskylda
og litla dama til hamingju með fallega nafnið þitt! Það hljómar mjög vel og á vel við.
Innilega til hamingju öll...
kveðja Heiða
Post a Comment