
Á leiðinni frá Selfossi að Rauðavatni, á fimmtudagskvöld fyrir verslunarmannahelgina mættum við:
15 hjólhýsum
14 fellihýsum
11 tjaldvögnum
7 húsbílum
Og það var almennt lítil umferð.
Þetta er partur af hinum hefðbundna bílatalningarleik okkar Sindra á ferðunum endalausu yfir Hellisheiðina. Við veljum okkur bíla eða einhver farartæki (t.d. jeppa eða hvíta bíla) og svo er æsispennandi keppni um það hver vinnur. Almennar niðurstöður úr þessum keppnum eru þær að jeppar hafa alltaf vinninginn, nema ef skyldu vera gráir bílar. Næst koma hvítir bílar, sirka jafn mikið af rauðum og bláum. En um verslunarmannahelgina er mjög gott að veðja á hjólhýsi.
1 comment:
það er gott að vera ekki ein af þessu pakki. Það er ekki einu sinni til tjald og GRÁR (oh þurfti ég að eiga algengasta bílalitinn af öllum litum) SAAB á ekki eftir að sjást á þjóðvegi eitt um helgina.
Post a Comment